Blóð, sviti og tár

4. fl. kvk. FH

28.06.2007 20:49:42 / Atli

upplýsingar

ef þið viljið afla ykkur meiri upplýsinga um Partille þá er slóðin á síðuna www.partillecup.com

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 15:31:40 / Atli

sunnudagurinn 1.júlí

já sunnudaginn 1.júlí er síðasta æfingin fyrir Svíþjóðarferðina og ætlum við að gera okkur glaðan dag og mæta allar í kaplakrika kl. 14.

Við ætlum að slá til smá veislu og eiga allar að koma með eitthvað með sér og er listinn svona:

Gígja = diskar og glös

Emma og Sara = kaka og nammi

Gréta = kaka

Guðrún = kaka

Steffý = heitur réttur

Berglind = heitur réttur

Steinunn = drykkir

Helga = nammi

Valla = nammi

Edda = kaka


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 18:28:33 / Atli

það er æfing..

...á morgun kl. 16-17 í Kaplakrika og er skildumæting þar sem stuttur fundur verður eftir æfingu þar sem mikilvæg gögn um Partille verða afhent.


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 17:20:39 / Atli

athugið

æfingin á morgun mánudag fellur niður og er næsta æfing þá líklegast á þriðjudaginn kl. 17.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 22:16:24 / Atli

nýtt plan

æfingarnar fram að svíþjóðarferðinni eru sem hér segir:

21.júní fim. 17-18 Kaplakrika

24. júní sun. 14:00-15:00 Kaplakrika

25. júní mán. 17-18 Kaplakrika

27.júní mið. 17.-18

28. júní fim. 17-18

30. júní lau. sundaæfing kl. 11-12:30

1. júlí sun. 14-15 Kaplakrika á þessari æfingu verður náttfatapartý og kökur og eitthvað spennó og koma fleiri upplýsingar um það þegar nær dregur

Það er mjög mikilvægt að allar mæti á þessar æfingar þar sem það er mjög stutt í brottför

Bestu kveðjur,

nýji æðislegi, frábæri, skemmtilegi, fyndni og myndarlegi aðstoðarþjálfarinn og síðast en ekki síst formaður bekkjarráðs,

Formaður S

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 15:59:31 / Atli

næsta æfing

næsta æfing er í kvöld kl. 20:10 og athugið að æfingatímarnir eiga eftir að breytast síðar í vikunni en þið fáið að vita allt um það á æfingunni í kvöld

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 14:08:32 / Atli

á döfinni

sundæfingin sem átti að vera í dag fellur niður og eru æfingarnar framundan svona:

sunnudagur 3.júní í Kaplakrika kl. 13:40

þriðjudagur 5.júní í Kaplakrika kl. 20:10

miðvikudagur 6.júní kl. 15:40

 foreldrafundurinn fyrir eldra árið er svo á mánudaginn kl. 18 í kaplakrika


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 22:39:40 / Atli

upplýsingaflóð

magnað þetta internet...

en já æfingarnar framundan eru á þessa leið:

miðvikudagur 30. maí í Kaplakrika kl. 15:40 úti og svo inni.

fimmtudagur 31. maí í Kaplakrika kl. 20:10 úti og svo inni. Þær sem ekki mæta á þessa æfingu eru ekki að fara að spila í svíþjóð.

laugardagur 2.júní sundæfing kl. 17:00 í Suðurbæjarlaug

athugið að foreldrafundur er miðvikudaginn 30.maí kl. 17:30 í Kaplakrika og verða allir foreldrar að mæta.

svo á mánudaginn 4.júní er svo foreldrafundur fyrir stelpurnar sem eru fæddar '91 og mun tíminn koma inn síðar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 15:47:38 / Atli

pizzuveisla!

á morgun mánudaginn 21. maí verður pizzuveisla heima hjá Gígju að Kirkjuvöllum 5 kl.19:30 og eiga allar að koma með 500 krónur.

á hinni síðunni www.blog.central.is/_fh er svo skoðanakönnun sem þið að sjálfsögðu takið þátt í og getið kosið um hvað þið viljið á pizzuna ykkar.

Annað...
munið að svara spurningunum sem eru á blaðinu sem þið fenguð áðan og senda Gígju.  


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 15:39:28 / Atli

prógrammið framundan

 

laugardagur 19.maí: Sundæfing í Suðurbæjarlauginni kl.11

sunnudagur 20.maí: æfing úti og inni í Kaplakrika og er mæting kl. 13:45 og verið tilbúnar í útifötunum.

mánudagur 21. maí: pizzuveisla hjá Gígju, tímasetningin er ekki alveg komin á hreint.


Annað..
allar sem geta eiga að kaupa sér sippuband og mæta svo framvegis með það á æfingar. Svo væri líka gott að kaupa sér froskalappir fyrir sundæfingarnar og fæst þetta allt saman hjá myndarlegasta manninum norðan Alpafjalla, honum Theódóri Sigurðssyni (Tedda) í verslun hans P. Ólafsson.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 17:54:48 / Atli

jó...

nei ekki jón...

en það er æfing á morgunn kl.11 í fyrramálið og er þetta útiæfing í Kaplakrika og verða allar að mæta í útifötum með húfu og vettlinga, auka peysu og sturtudót!

Hafiði það.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 19:31:22 / Atli

Tilkynning

ja það er æfing á morgun þriðjudaginn 15.maí kl.16:00 í Kaplakrika. Ekki er víst hvort salurinn inni sé laus svo þið verðið að taka með ykkur útidót til öryggis. Gígja, nýjasti þjálfarinn okkar mun sjá um þessa æfingu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 13:40:58 / Atli

Lokahóf

LOKAHÓF YNGRI FLOKKA FH Í HANDBOLTA

 

Fimmtudaginn 17. maí kl. 13.00 verður lokahóf yngri flokka FH í handbolta haldið í Kaplakrika. Hófið mun fara fram með hefðbundnum hætti, veittar verða viðurkenningar til iðkenda og valin verður þjálfari ársins. Allir krakkarnir fá pitsu og gos en foreldrum er boðið upp á kaffi og eru þeir beðnir um að útvega kökur eða annað meðlæti og koma með það í Krikann aðeins fyrir klukkan 13:00

Unglingaráð.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 13:40:30 / Atli

breyttur æfingatími

ég vil benda á að það er ekki æfing í dag miðvikudag 9.maí og næsta æfing á morgun kl.18 en ekki 20:30 eins og venjulega því Júróvisjón er á skjánum þetta sama kvöld.

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 18:34:20 / Atli

A.T.H!

það varð smá misskilningur í sambandi við æfinguna í gær en næsta æfing verður á þriðjudaginn 8.maí kl. 20:30 í kaplakrika og er það alveg pottþétt að æfingin verður og þá verða allar að mæta, mjög mikilvægt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Fimleikafélag Hafnarfjarðar
Bloggsíður leikmanna
Handbolti
Myndir 2006-2007